Horus Sepia – Arte
44.728 kr. rúlluverð
Jafnvel þó hundrað ár séu nú liðin frá hinum stórkostlega taumlausa áratug eða „Roaring Twenties“, heldur þetta tímabil áfram að fanga ímyndunaraflið. Þá kom fram hinn glæsilegi og fremur óhóflegi Art Deco stíll, innblásinn af glitrandi bjartsýni og merkisviðburðum samtímans. Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.
Í hönnun Horus veggfóðursins eru áhrif Art Deco stílsins augljós. Glæsilegt, geómetrískt mynstrið er nefnt eftir guðinum Horus úr egypskri goðafræði.
Horus er veggfóður með baki sem gert er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Procuratie Con Vista Soot & Snow - Cole & Son
Rubra Golden Natural - Arte
Riflesso - Cole & Son
Tana Straw - Arte
Acquario Charcoal - Cole & Son
Furada, Sage - Rebel Walls
Ex Libris Multi - Cole & Son
Toledo, Lemonade - Rebel Walls
Tana Pillow - Arte
Anglessy, Plum - Rebel Walls
Angel's Trumpet - Cole & Son
Alba Bark - Arte
Carnaby, Slate - Rebel Walls
Alba Nutmeg - Arte
Jasmine & Serin Symphony - Cole & Son