Honeysuckle & Tulip, Charcoal/Gold - Morris & Co
Honeysuckle & Tulip, Charcoal/Gold – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Þetta djúpprentaða veggfóður (djúptrukk aðferð) er einkar glæsilegt í hönnun og litum. Það er framleitt með gljásteini og málmgljáa en innblásturinn kemur upprunalega frá vatnslitamyndum Morris af Honeysuckle frá 1876. Honeysuckle & Tulip sýnir geitartopp og laufblöð fléttast og vinda sig fagurlega saman. Silfur og gull málmgljái í blöðum og blómum gera þessa útgáfu af mynstrinu einstaka.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
39.168 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Kefli - Friess, MintTex 10cm/16mm, þykk
Skaft - Purdy, Power Lock 183-366cm
Willow Boughs, Blue - Morris & Co