fbpx

Greenhouse Gathering Window, Oyster White - Arte

72.379 kr. rúlluverð

Greenhouse Gathering Window, Oyster White – Arte

Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé.

Greenhouse Gathering Window er töfrandi veggfóður sem sækir innblástur í skrautmótagerð. Hönnunin líkir eftir tilfinningunni þegar skyggnst er í gegnum rúður gróðurhúss á gróskuna innan við. Mynstrið er undir áhrifum Art Deco og minnir einlit pallettan á verk úr gifsi. Veggfóðrið hefur mjúkt rúskinnsútlit sem gerir það áþreifanlegra.

Greenhouse Gathering Window veggfóðrið kemur í lengjum 120 cm x 300 cm = 3.60 m2. Endurtaka má mynstrið til hliðar til að fá fleiri þiljur á vegginn. Einnig má setja það saman með Greenhouse Gathering Arch bogaþiljunni.

Greenhouse Gathering Window veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Má þrífa með rökum klút eða svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr textíl á non-woven bakhlið

72.379 kr. rúlluverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cmRúllulengd: 3 mMynsturhæð: 300 cm
Áætla rúllufjölda
m
m
cm
m
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping