 
						Ghicha Silk Alabaster - Arte
Ghicha Silk Alabaster – Arte
Wild Silk veggfóðurslínan er úr ekta silki en það undirstrikar fjölbreytni þessa hreina textíls að í línunni eru þrjár mismunandi tegundir af silki. Hver tegund hefur sína sögu að segja; ein hefur mjúkan gljáa, önnur er grófofin og sú þriðja býr yfir fínlegri fágun. Allar útgáfurnar bera með sér auðþekkta lúxus tilfinningu sem einungis ekta silki gerir. Náttúruleg áferðin bætir tímalausum sjarma við öll rými.
Ghicha veggfóðrið er gert úr handofnu silki sem er aðallega fengið úr villtum silkiormum úr náttúru Indlands. Óregluleg áferð og „gallar“ sem birtast að jafnaði í vinnufrekum, handspunnum silkivefnum eru hluti af einstökum sjarma þessarar yfirmáta fallegu náttúruafurðar.
Ghicha veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
26.160 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

 
					





























 
															 
															 
															 
															 
															 
															 
															 
															 Waffle Weave Camouflage White - Arte
Waffle Weave Camouflage White - Arte								 Feather Fan, Charcoal & Metallic Bronze - Cole & Son
Feather Fan, Charcoal & Metallic Bronze - Cole & Son								 Palm Jungle, Charcoal & Metallic Bronze - Cole & Son
Palm Jungle, Charcoal & Metallic Bronze - Cole & Son								 Pure Strawberry Thief, Oyster/Chalk - Morris & Co
Pure Strawberry Thief, Oyster/Chalk - Morris & Co								 Ghicha Silk Stone Blue - Arte
Ghicha Silk Stone Blue - Arte