Emery’s Willow Herball – Morris & Co
33.224 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Willow er eitt allra þekktasta mynstur William Morris. Það sýnir einfaldar og stílhreina víðigreinar teygja sig upp vegginn. Veggfóðrið var hannað árið 1874 og er forveri mun flóknari útgáfu, Willow Boughs, sem var prentuð 13 árum síðar. Hér er svo nýjasta útgáfan af Willow, Emery´s Willow, sem er stílfærð frekar fyrir hús hins virta leturgerðarmanns og vin William Morris, Sir Emery Walker.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



























Terre de Lin Alizé - Arte
Lin Smoke - Arte
Pure Lodden, Ivory/Linen - Morris & Co
Cheetah Prowl, Bronze - Cole & Son
Lin Dauphin - Arte
Raphael Forest Teal - Sandberg
Acquario Charcoal - Cole & Son
Terre de Lin Dulce - Arte
Lin Cimento - Arte
Lin Normandie Petit Nuage - Arte
Lin Tartufo - Arte
Lin Moonlight - Arte
Lin Perle - Arte
Lin Vallauris - Arte
Lin Normandie Gentleman - Arte
Fig Garden Sandstone - Sandberg