Elmcote Sunflower – Morris & Co
37.892 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Elmcote er magnað og gróskumikið veggfóður, hannað árið 1900. J.H Dearle, hægri hönd Morris og lærlingur í veggteppamynstrum, á heiðurinn af þessu veggfóðri. Það sýnir tilkomumikla fræhausa og smágerð blóm umkringd laufblöðum sem þyrlast um í klassískum Dearle stíl. Veggfóðrið var endurvakið til framleiðslu vegna samstarfs Morris & Co við safnið Emery Walker´s House en Sir Emery Walker var virtur leturgerðarmaður, bókaprentari og náinn vinur William Morris.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



























Satara, Slate & White Mica on Print Room Blue - Cole & Son
Satara, Soot & Metallic Gold on Linen - Cole & Son
Satara, Burnt Orange & Sand on Black - Cole & Son
Bush Baby, Sage & Chartreuse on Parchment - Cole & Son
Kalahari, Spice & Black - Cole & Son
Lin Normandie Marais - Arte
Eri Copper - Arte
Twine Graphite - Rebel Walls
Nene, Tangerine, Forest Green & Petrol on Ink - Cole & Son
Lin Stone - Arte
Petals Sky - Rebel Walls
Cuadro Charcoal - Arte
Tasar Silver Sand - Arte