Doudeville Mauve – Arte
195.400 kr.
Þessi heilmynd er prentuð á alvöru textílefni og er nefnd eftir Doudeville í Normandí, sem stundum er kölluð höfuðborg hörsins í Frakklandi. Hönnunin er innblásin af uppruna hörsins og fjölmörgum línökrum sem er að finna á strandsvæðum Vestur-Evrópu. Eftir uppskeru eru hörstilkarnir skildir eftir á ökrunum og myndast þá sláandi röndótt landslag í fallegum litbrigðum. Sú sýn, sem er svo dæmigerð fyrir Doudeville og önnur hörræktarhéruð í kring, var fyrirmyndin að þessu heillandi randamynstri.
Heilmyndin er í staðlaðri stærð: 390 cm x 300 cm (11,7 m2) og má endurtaka mynstrið með því að tengja aðra heilmynd við hliðina.
Doudeville veggfóðrið er úr textíl með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun
Le Papier Tissé Bone - Arte
Tela Black Raisin - Arte
Tulle Mink - Arte
Nelson Cream - Arte
Temper Galet - Arte
Temper Peach - Arte
Tulle Nude - Arte
Tulle Cream - Arte
Bouclé Caramel - Arte
Nelson Sunset - Arte
Chanderi Eggshell - Arte
Tulle Mushroom - Arte
Manchas Umber - Arte