
Daisy Artichoke/Plaster - Morris & Co
Daisy Artichoke/Plaster – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Daisy var fyrsta veggfóðrið sem Morris & Co framleiddi. Það var innblásið af myndskreytingum frá miðöldum. Morris skapaði þetta mynstur eftir að hafa saumað út freyjubrár á veggteppi fyrir Rauða húsið (Red House). Þessi útgáfa heldur barnslega teiknuðum freyjubrám og sóleyjum úr upprunalega veggfóðrinu.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun