Couture Carousel, Pastel - Cole & Son
Couture Carousel, Pastel – Cole & Son
Í tilefni af 175 ára afmæli Harrods hefur hönnunarhúsið Cole & Son, í samstarfi við innanhússhönnuði Harrods, skapað Couture Carousel; veggfóður sem heiðrar ríka arfleifð Harrods og um leið heim hátískunnar.
Couture Carousel línan er handteiknuð og handmáluð í höfuðstöðvum Cole & Son í Chelsea. Hver og ein af 16 hönnunarmyndum tákna tímabil í hátísku; allt frá sjötta og sjöunda áratugnum, sem einkenndust af glæsilegri hönnun, til djarfra klæða níunda og tíunda áratugarins, þegar tískan varð tilraunakenndari og framsæknari. Innblásturinn að þessu einstaka veggfóðursmynstri eru gamaldags forsíður Harrods tímarita, sem sýna stórkostlega fallegar tískumyndskreytingar, bæði í skærum og dempuðum vatnslitum. Þannig sjáum við sérsniðnar hönnunarflíkur sem segja frá ferðalagi í gegnum hástískustrauma síðustu áratuga.
Veggfóðrið er fáanlegt í sex litasamsetningum, allt frá líflegum litatónum Bright Multi til glæsilegra eintóna Monochrome, og er fáanlegt ýmist á nútímalegum möttum bakgrunni eða með rómantískum gljáa.
56.019 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

















Shades Phonolite - Boråstapeter
Tree of Life, Stone - Cole & Son
Biseau Bronze Black - Arte
Sky - Boråstapeter
Injisuthi, Stone & Sand - Cole & Son
My Feldt Violetta - Boråstapeter
Selma - Boråstapeter
Scrolling Tulip, Gold - Morris & Co
Blossom Mini - Boråstapeter
Skogsblomst - Boråstapeter
Hagtorn - Boråstapeter
Willowherb - Boråstapeter
Flamenco Fan - Cole & Son
Butterflies & Dragonflies, Alabaster & Metallic Gold on Eau Du Nil - Cole & Son