
Coccinella Bella, Sage Green - Arte
Coccinella Bella, Sage Green – Arte
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé.
Coccinella Bella veggfóðrið er innblásið af fjölbreyttu úrvali blóma og laufblaða sem teljast til heimkynna maríubjöllunnar. Mótífið er byggt á marglitu, jakobínsku blómamynstri sem prentað er á mjúkan textíl.
Coccinella Bella veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
23.498 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun