Coccinella Bella, Jacquard - Arte
Coccinella Bella, Jacquard – Arte
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.
Coccinella Bella Jacquard veggfóðrið er innblásið af fjölbreyttu úrvali blóma og laufblaða sem teljast til heimkynna maríubjöllunnar. Mótífið er byggt á tvílitu, jakobínsku blómamynstri sem er ofið inn í textílinn, með svokallaðri jacquard vefnaðaraðferð.
Coccinella Bella Jacquard veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
41.200 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Lin Normandie Blue d'Encre - Arte
Deva, Rust - Rebel Walls
Pensill - Purdy, Pro-Extra Monarch 25mm
Nelson Chilli - Arte
Fruit, Limestone/Artichoke - Morris & Co
Year Of The Tiger Saffron - Rebel Walls
Terre de Lin Mushroom - Arte
Japanfjaðrir - Friess, plast 4stk
Lin Normandie Authentic Rust - Arte
Stig Lindberg Fruktlåda - Boråstapeter
Perspective La Rue - Rebel Walls
Lin Atlantique - Arte
Planetarium, Pink - Rebel Walls
Skaft - Friess, SoftTouch 100-200cm
Dreamscape, Velvet - Rebel Walls