Canvas Straw - Arte
Canvas Straw – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í strágulu.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Terre de Lin Le Flot Bleu - Arte
Monica Hazel - Sandberg
Campo Cloth - Arte
Camago Mangrove - Arte
Matrinah, Soot on Snow - Cole & Son
Linda Sandstone - Sandberg
Flamingos - Cole & Son
Daisy & Oak, Sage/Forest - Morris & Co
Rosenvinge - Boråstapeter
Summer Lily - Cole & Son
Kefli - Friess, Futura lakkrúlla 25cm
Magnolia Garden - Boråstapeter
Lin Boots - Arte
Anna Hazel - Sandberg
Rajapur - Cole & Son
Summer Lily - Cole & Son
My Feldt Trädgårdskrasse - Boråstapeter
Shimmer Brick - Arte
Terre de Lin Sang de Boeuf - Arte
Geo - Boråstapeter