Cannage – Arte
49.500 kr. lengdarmetraverð
Öll veggfóður í Spectra hönnunarlínunni eru hönnuð í þrívídd með nýstárlegri tækni, svokallaðri hitamótun. Heitu móti er þrýst inn í textílefni og helst mótafarið í efninu þegar það kólnar. Spectra veggfóðrin hafa jákvæð áhrif á hljóðvist.
Með Cannage mynstrinu virðast veggirnir fléttaðir. Mynstrið er einmitt innblásið af hefðbundinni tágavinnu fyrir stólasetur og bök þar sem flóknu, lagskiptu línurnar fanga athyglina. Tæknin minnir á náttúruleg efni eins og reyr eða rattan. Cannage hefur þrívíddarútlit og er einkar mjúkt viðkomu, nánast eins og fíngert rúskinn.
Cannage veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
Í boði sem biðpöntun
Oak & Blossom, Chestnut/Primrose - Morris & Co
Marseille, Pearl - Rebel Walls
Grace, Beige - Sandberg
Marsh Washed White - Arte
Marion, Misty Blue - Sandberg
Puro Ash - Arte
Nongo Blue Ash - Arte
Weave Deep Sea - Arte
Wild Tulip & Vine, Multi - Morris & Co
Campo Toffee - Arte
Cuadro Cloth - Arte
Puro Toffee - Arte
Campo Clay - Arte
Campo Sandstone - Arte