Bramble, Indigo - Morris & Co
Bramble, Indigo – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Bramble er stílfært mynstur af brómberjarunnum, fullum af berjum og hvítum blómum. Veggfóðrið hannaði Kate Faulkner árið 1879, en hún var hæfileikarík systir eins hönnuðar úr Morris hópnum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.186 kr. rúlluverð
Available on backorder































Whales in the Sky - Boråstapeter
Stars, Metallic Gold on Ice Blue - Cole & Son
Lin Normandie Sorbet - Arte
Lin Beach - Arte
Summer Lily - Cole & Son
Faded Passion Sage Green - Sandberg
Carmen, Metallic Bronze - Cole & Son
Nocturne - Boråstapeter
Bamboo Grove, Clay - Sandberg
Feather Fan, Ballet Slipper - Cole & Son
Nelson Ash Purple - Arte
Tasar Opal - Arte