Biseau Sunburst - Arte
Biseau Sunburst – Arte
Biseau er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum sísalvef. Rúmfræðilegu kassaformin eru ýmist þrílit eða einlit en vefnaðurinn fer í nokkrar áttir sem skapar skemmtileg þrívíddaráhrif. Litur: Koparrauður.
Biseau sísalvefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
28.200 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun













Happy Clouds, Graphite - Rebel Walls
R22 rósetta
Constellations - Boråstapeter
Mischievous Tigers - Rebel Walls
DX119-2300 alhliða listi
D200 skrauthorn á gerefti
SX137 gólflisti
Leopard Walk, Orange on Linen - Cole & Son