Bird Webb’s Blue – Morris & Co
41.149 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Veggfóðursmynstrið Bird var upphaflega hannað fyrir textíl og sýnir kyrrláta stemningu af fuglapörum sem ýmist sitja á grein eða hefja sig til flugs. Mynstrið er innblásið af veggteppi sem William Morris gerði árið 1878 og prýddi teiknistofu hans í Kelmscott House. Bird fæst í fjórum sterkum litasamsetningum sem gefa öllum rýmum mikinn karakter.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



























Terre de Lin Blush - Arte
Angel's Trumpet - Cole & Son
Chiavi Segrete Forest Green - Cole & Son
Geranium - Cole & Son
Hip Rose - Boråstapeter
Lin Normandie Dove - Arte
Papillon Beige - Arte
Lin Tartufo - Arte
Willowherb - Boråstapeter
Terre de Lin Saint Barth - Arte
Camellia, Crimson on Metallic Gold - Cole & Son
Acquario Ink - Cole & Son
Terre de Lin Fjord - Arte