Between Rivers Cream - Arte
Between Rivers Cream – Arte
Between Rivers er mynstur úr Babylon línunni, en Babýlon í Mesópótamíu var fyrsta stórborg heimsins, oft nefnd vagga siðmenningarinnar. Innblásturinn er fenginn úr fornum fleygbogahandritum sem voru teiknuð og skorin eða hoggin út í leirtöflur og klettaveggi. Hönnun veggfóðurslínunnar tók mið af þessari gömlu myndhöggvaratækni og var unnin þannig að leirtöflur voru mótaðar í höndunum af mikilli nákvæmni og síðan var mynstrið yfirfært á textílefni fyrir veggfóður. Þrívíddaráhrifin eru einstaklega áhrifamikil. Mynstrið Between Rivers er stór heilmynd og sýnir goðsagnakenndan vettvang í gróskumikilli náttúru Babýloníu á milli ánna Tígris og Efrat – svæðisins þar sem ræktun lands og búfjár er upprunnin. Þessi hugmyndaríka veggmynd sýnir fíla, gasellur, döðlupálma og leifar fornra hofa. Upprunalega myndin á bak við Between Rivers er listaverk eftir Frédérique og Rob Whittle – og Max.
Between Rivers er heilmynd 350 cm x 270 cm = Alls 9,45 m2. Í henni eru 15 flísar, 70 cm x 90 cm hver. Ekki er hægt að endurtaka mynstrið til hliðar (tvær myndir falla ekki saman þannig að þær myndi eina heild).
Between Rivers veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs – límið þarf að vera sterkara en það sem notað er við uppsetningu hefðbundins veggfóðurs vegna þyngdar veggmyndanna. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
1.155.000 kr.
Í boði sem biðpöntun

Cocktails Multi - Cole & Son
Sigrid - Boråstapeter
Palm Jungle - Cole & Son
Petrouchka, Emerald - Cole & Son
Geometry Lilac - Rebel Walls
Engla Mineral Grey - Sandberg
Facet Pure Gold - Arte
Capas 34303 - Arte
Corteza 34200 - Arte
Manchas Chamois - Arte
Edge Flax - Arte
Malabar - Cole & Son
Granville Chalk - Arte
Kefli - Friess, Micro Crater 18cm
Capas 34307 - Arte
Nuvole al Tramonto Dusk - Cole & Son