Aspero Oyster - Arte
Aspero Oyster – Arte
Aspero mynstrið er endursköpun á ekta höráferð en með grófari vefnaði. Lífleg áhrif nást með því að sameina mismunandi dempaða litatóna í sama vefinn. Áferðin skapar samstundis hlýja, notalega tilfinningu í rýmið. Aspero kemur í 6 litum. Þessi útgáfa er í dröppuðum og brúnum tónum.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Aspero er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Kefli - Friess, Profingrey 25cm-16mm
Puro Honey - Arte
Satara, Soot & Metallic Gold on Rouge - Cole & Son
Mischievous Monkeys, Lush - Rebel Walls
Pure Acorn, Chalk/Silver - Morris & Co
Lin Gris Brouillard - Arte
Cow Parsley - Cole & Son
Facet Deep Ocean - Arte
Raphael Blue - Sandberg
Tulle Cream - Arte
Anna Misty Blue - Sandberg
Triana - Cole & Son
Spring Season Blue - Rebel Walls
Cupula Cocoa - Arte
Hanna, Misty Blue - Sandberg
Miami, Soot & Snow - Cole & Son
Butterflies & Dragonflies, Alabaster & Metallic Gold on Pale Cream - Cole & Son
Puro Ash - Arte
Lykke Misty Blue - Sandberg
Victoria's Garden - Rebel Walls
Tasar Teal - Arte