Aspero Fjord - Arte
Aspero Fjord – Arte
Aspero mynstrið er endursköpun á ekta höráferð en með grófari vefnaði. Lífleg áhrif nást með því að sameina mismunandi dempaða litatóna í sama vefinn. Áferðin skapar samstundis hlýja, notalega tilfinningu í rýmið. Aspero kemur í 6 litum. Þessi útgáfa er í dökkbrúnum og dröppuðum tónum.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Aspero er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































C362 ljósalisti
Terre de Lin Sang de Boeuf - Arte
CX109 loftalisti
Rand Terracotta - Sandberg
Celeste, Misty Blue - Sandberg
Dreamscape, Greige - Rebel Walls
Terre de Lin Hutte - Arte
CX111 loftalisti
Dove Gardens, White - Rebel Walls
Handfang - Purdy, Revolution breytanlegt 30-46cm
Terre de Lin Cabanon - Arte
Marsh Pine Grey - Arte