Aspero Blue Stone - Arte
Aspero Blue Stone – Arte
Aspero mynstrið er endursköpun á ekta höráferð en með grófari vefnaði. Lífleg áhrif nást með því að sameina mismunandi dempaða litatóna í sama vefinn. Áferðin skapar samstundis hlýja, notalega tilfinningu í rýmið. Aspero kemur í 6 litum. Þessi útgáfa er í dökkum blágráum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Aspero er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Pandan Blue Stone - Arte
Prism, Pastel - Cole & Son
Corteza 34203 - Arte
Cow Parsley - Cole & Son
Nelson Chanterelle Grey - Arte
Petite Fleurs - Boråstapeter
The Beauty of Life Sunflower - Morris & Co
Linne Blush - Sandberg
Skurðarpúði - Anza
Nongo Basket - Arte
Weave Espresso - Arte
Handfang - Friess, 10cm
Motas Beach - Arte
Atlas Soft Beige - Arte
Temper Cabernet - Arte
Whales in the Sky - Boråstapeter
Lush Foliage - Rebel Walls
Puro Toffee - Arte
Melville, Soot & Snow - Cole & Son
Dark Floral - Boråstapeter
Butterflies & Dragonflies, Alabaster & Metallic Gold on Eau Du Nil - Cole & Son