Alentejo Cork Aquamarine – Arte
19.350 kr. lengdarmetraverð
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Korkurinn í Alentejo Cork veggfóðrinu er mjög vandaður, með miklum smáatriðum og glansandi lakkhúð sem gefur honum snert af glæsileika. Nafn sitt dregur veggfóðrið af Alentejo, svæði í Portúgal sem þekkt er fyrir korkskóga sína .
Alentejo Cork er gert úr náttúrulegum korki með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Lin Denim - Arte
Pure Acorn, Linen/Ecru - Morris & Co
Pärlrand - Boråstapeter
La Belle Epoque - Boråstapeter
Terre de Lin Rotin - Arte
Versailles Grand - Cole & Son
Lin Flax - Arte
Flamingos, Blush on Midnight - Cole & Son
Lin Muscade - Arte
Oriental Garden - Boråstapeter
Flamingos, Olive - Cole & Son
Simon, Sandstone - Sandberg
Feather Fan - Cole & Son