fbpx

Adobe Limestone - Arte

60.496 kr.

Adobe Limestone – Arte

Adobe er mynstur úr Babylon línunni, en Babýlon í Mesópótamíu var fyrsta stórborg heimsins, oft nefnd vagga siðmenningarinnar. Innblásturinn að Adobe mynstrinu er fenginn þaðan úr fornum fleygbogahandritum sem voru skorin út og teiknuð í leirtöflur og klettaveggi. Þessi myndhöggvaratækni í leir er viðmið Babylon línunnar. Hönnun hennar var einmitt þannig unnin að leirtöflur voru mótaðar í höndunum af mikilli nákvæmni og síðan var mynstrið yfirfært á textílefni fyrir veggfóður. Þrívíddarahrifin minna helst á höggmyndaflísar unnar í gifs. Mynstrið Adobe leikur sér með ýmiss konar upphleypt form, bæði á hæð og dýpt. Óreglulegu ferningarnir og þríhyrningarnir skapa heillandi, geómetrísk áhrif. Hönnunin vísar til óbrenndra leirtaflna (adobe) sem eru þurrkaðar í sólinni.

Adobe er selt í plötum 90 cm x 80 cm. Mynstrið má endurtaka eins oft og vill.

Adobe veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs – límið þarf að vera sterkara en það sem notað er við uppsetningu hefðbundins veggfóðurs vegna þyngdar veggmyndanna. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

60.496 kr.

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 97033 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping