Að mála múrklæðningu (einangrað utan frá)
með síloxan/steinsílan akrýlmálningu
Val á efnum
Múrklæðningu skal ætíð mála með síloxan akrýlmálningu (Murtex Siloxane eða Alphaloxan Flex). Slík málning býr yfir einstökum öndunareiginleikum en nauðsynlegt er að máluð múrklæðning geti „andað“. Málning sem er of lokuð getur valdið rakaþéttingu í einangrun undir múrklæðningu sem síðan frýs á vetrum og sprengir af sér múrklæðninguna í kjölfarið.
Nýmálun
- Tryggið að múrklæðningin sé þurr og laus við ryk, fitu, myglu og önnur óhreinindi. Sumar tegundir af múrklæðningu þurfa hafa staðið í allt að 1 ár fyrir málun. Gerið við sprungur og skemmdir með Husrep eða sambærilegum sements- og trefjafylltum viðgerðarefnum.
- Á hefðbundna múrhúð er ráðlagt að bera Murtex Waterproof eða Mur-Silan (mónósílan) vatnsvörn. Látið þorna í a.m.k. 48 klst. Sílanið dregur úr hárpípusogi vatns í steypu.
- Grunnið síðan eftir þörfum með Alpha Aquafix Opaque (hvítur grunnur), þynntum um 10-15% af vatni eða Professional Microdispers (glær grunnur). Á mjög gljúpa og duftsmitandi fleti skal nota Professional Microdispers.
- Vatnsbretti og lítið hallandi fleti skal mála 2-3 umferðir af ONE Super Tech. Málið aðeins út á lóðréttan flöt til að mynda „hatt“ sem varnar því að vatn skríði undir málningarfilmuna.
- Málið loks 2 umferðir með síloxan málningu, annað hvort Murtex Siloxane eða Alphaloxan Flex, sem er teygjanleg síloxan málning.
- Á netsprungna múrklæðningu skal nota Alphaloxan Flex (eitt og sér – ekki með Murtex Siloxane).
Endurmálun
- Tryggið að múrklæðningin sé þurr og laus við ryk, fitu, myglu og önnur óhreinindi. Fjarlægið umferðarsót með Målartvätt og vatni. Látið þorna. Fjarlægið lausa málningu með skröpun eða léttum háþrýstiþvotti.
- Gerið við skemmdir með Husrep eða sambærilegum sements- og trefjafylltum viðferðarefnum.
- Grunnið bera fleti með Alpha Aquafix Opaque (hvítur grunnur), þynntum með vatni um 10-15%.
- Vatnsbretti og lítið hallandi fleti skal mála 2-3 umferðir með ONE Super Tech, sbr. nýmálun að ofan.
- Málið loks 2 umferðir með síloxan málningu, annað hvort Murtex Siloxane eða Alphaloxan Flex, sem er teygjanleg síloxan málning.
- Á netsprungna múrklæðningu skal nota Alphaloxan Flex (eitt og sér – ekki með Murtex Siloxane).
*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.
Heilsufars- og umhverfismál
Ekki láta málningardósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.
Tæknilegar upplýsingar
Til notkunar: Utanhúss
Yfirmálun:
Mur-Silan 48 klst
Alpha Aquafix Opaque 6 klst
Professional Microdispers 3-4 klst
Murtex Siloxane, Alphacoat og Alphaloxan Flex 8-12 klst
Þynning: Vatn
Verkfæri: Penslar, rúllur. Notið ekki sömu verkfæri í Mur-Silan og í málninguna
Þekja:
Mur-Silan 4-5 m2/l
Alpha Aquafix Opaque 4-8 m2/l
Professional Microdispers 8-10 m2/l
Alphacoat 4-5 m2/l
Murtex Siloxane og Alphaloxan Flex 7-9 m2/l
Hreinsun: Vatn