fbpx

Lacy Longlegs, Ivory - Arte

44.814 kr. lengdarmetraverð

Lacy Longlegs, Ivory – Arte

Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.

Lacy Longlegs veggfóðrið sækir innblástur í flókinn vef köngulóarinnar, laufblöð og gotneska boga. Það er hannað í þrívídd þannig að heitu móti er þrýst inn í textílefni en mótafarið helst í efninu þegar það kólnar. Mjúk bouclé áferðin og þrívíddin hafa jákvæð áhrif á hljóðvist.

Lacy Longlegs veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið

44.814 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cmMynsturhæð: 108,5 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping