Tasar Desert Sun - Arte
Tasar Desert Sun – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í dökkum rauðbrúnum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
43.229 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Ruta Blush - Sandberg
Edvin, Indigo Blue - Sandberg
Einar Grey - Sandberg
Prisma - Boråstapeter
Prisma - Boråstapeter
Raku Crackle, Cream - Rebel Walls
Emilia Ilke, Clay - Sandberg
Zen, Terracotta - Sandberg
Willowherb - Boråstapeter
Venice - Boråstapeter
Waves Green - Rebel Walls
Willowherb - Boråstapeter
Tamba Tuscan - Arte
Einar Sandstone - Sandberg
Zen Mural, Graphite - Sandberg
Cube - Boråstapeter
Franges Cobalt - Arte
Flor Imaginaria Pheasant - Arte