Við kynnum lit ársins 2018!*
HEART WOOD er grábleikur litur með mildum jarðtóni. Afar fallegur og hentar í öll rými. Litavalið kemur okkur ekki á óvart því við höfum um nokkra hríð einmitt bent viðskiptavinum á ljósari blæbrigði af þessum ljúfa lit. Heart Wood er kjarnalitur í öllum nýju litapallettunum okkar en þær verða kynntar bráðlega hér á síðunni okkar.
Árlega er valinn litur ársins hjá Nordsjö og systurfyrirtækjum þess. Það ríkir alltaf mikil spenna í kringum valið því það hefur sýnt sig að litur ársins – og litapalletturnar sem fylgja – endurspeglar vel það sem koma skal í litatískunni á heimilum hérlendis. Á síðasta ári var DENIM DRIFT kjörinn litur ársins 2017. Hann sló hressilega í gegn enda notalegur, töff en samt sem áður sígildur. Denim Drift er nefnilega eins og gallabuxur – gengur við allt! Við spáum honum langlífi.
*Á hverju ári koma saman tugir sérfræðinga og tískuvita frá öllum heimshornum á vegum AkzoNobel samsteypunnar sem á m.a. Nordsjö, Sikkens og International (sem Sérefni hafa umboð fyrir hérlendis). Sérfræðingarnir koma úr ýmsum áttum, s.s. arkitektúr, innanhússhönnun, grafík, fata- og vöruhönnun og félagsfræðilegum rannsóknum á tískustraumum. Saman fjalla þeir um það sem þeir telja að verði þróunin í tísku og hönnun á næstu árum. Út frá þessu ferli eru valdar ákveðnar litasamsetningar og einn afgerandi tískulitur næsta árs. Þannig er ætíð tryggt að val okkar hafi forspárgildi og sé í takti við alþjóðlega þróun í litatísku.