Hálfþekjandi viðarvörn nanóakrýl
Hálfþekjandi viðarvörn nanóakrýl
ONE TRANSPARENT
ONE Transparent er vatnsþynnanleg og hálfþekjandi viðarvörn sem dregur fram viðaræðarnar og færir líf í áferð viðarins. Hún er sérstaklega góð vörn gegn veðrun vegna eiginleika sem byggja á nanó-sílikontækni. Sú tækni gerir það m.a. að verkum að filman er sjálfhreinsandi því bindiefnin gera flötinn jafnari og harðari (samt með góðri teygju) og hann hrindir þ.a.l. betur frá sér óhreinindum. Regnvatn skolar síðan óhreinindunum auðveldlega burt. Vatn nær heldur ekki að loða við flötinn og því springur viðurinn miklu síður. Þessir eiginleikar eru afar mikilvægir fyrir þá sök að ef óhreinindi festast ekki í klæðingu ná þörungar og sveppagróður ekki fótfestu – því þeir lifa á skítnum. Hrein málning endist mun lengur og heldur lit sínum betur.
Enn einn kosturinn við ONE Transparent er innbyggð sólarvörn (UV og HALS) sem kemur í veg fyrir niðurbrot og gráma í við. ONE Transparent þornar fljótt og er regnþolin 2 klst. eftir málun.
Ath. Hentar ekki á harðvið: Þar ráðleggjum við Cetol HLS plus og/eða Cetol Filter 7 plus frá Sikkens.
Vöruflokkar: Málað utanhúss, Málning fyrir hús, Viðarvörn úti






Raphael Forest Midnight Blue - Sandberg
Montfort Indigo Blue - Sandberg
Lin Flax - Arte
Annabelle Clay - Sandberg
Valborg - Boråstapeter
Sophia - Boråstapeter
Annabelle Classic Blue - Sandberg
Birgit - Boråstapeter
Vera - Boråstapeter
Lin Scotland - Arte
Signe - Boråstapeter
Sophia - Boråstapeter
Signe - Boråstapeter