Woodbell & Anemone, Indigo - Morris & Co
Woodbell & Anemone, Indigo – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Woodbell & Anemone mynstrið sýnir falleg oddbogaform, byggð upp af anemónum sem eru umkringdar bláklukkum. Mynstrið var unnið upp úr lítilli skissu úr fórum Morris og fullgert í ríkulegri litapallettu. Veggfóðrið er prentað með tækni sem býr til svipaða áferð og útlit og upprunalega blokkprentið og gerir mikið fyrir þetta skemmtilega mynstur.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
38.229 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Nelson Ash Purple - Arte
Sommarslöja - Boråstapeter
Golden Lily, Slate/Manilla - Morris & Co
Anton, Misty Blue - Sandberg
Lily Swan - Boråstapeter
Rúllusett og bakki - Embo, 10cm
Emilie, Clay - Sandberg
Hip Rose - Boråstapeter
Nongo Warm White - Arte
Columbus, Soot & Snow - Cole & Son
Motas Sepia - Arte
Iris & Rose, Indigo/Crimson - Morris & Co