Uno Clay - Arte
Uno Clay – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Uno línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Uno veggfóðrið er samsett úr breiðum lengjum af náttúrulegri jútu á þann veg að brúnirnar skarast. Þetta skapar fallega lágstemmd áhrif. Uno sker sig úr fyrir einfaldleika en handofið efnið hefur ekta, náttúrulegt útlit og áferð.
Uno er náttúrulegt veggfóður úr lituðum jútutrefjum. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
14.916 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun








Granville Blue Stone - Arte
Strelitzia Bark - Arte
Thistle, Magenta & Orange on Parchment - Cole & Son
Pensill - Harris Premier, 12mm
Cuadro Ocean - Arte
Pandan Blue Stone - Arte
Seasonal Woods, Gold Pearl - Cole & Son
Tasar Marigold - Arte
Rand Terracotta - Sandberg
Rajapur - Cole & Son
Geo - Boråstapeter
Tana Juniper - Arte