Thebe Terra – Arte
355.000 kr.
Jafnvel þó hundrað ár séu nú liðin frá hinum stórkostlega taumlausa áratug eða „Roaring Twenties“, heldur þetta tímabil áfram að fanga ímyndunaraflið. Þá kom fram hinn glæsilegi og fremur óhóflegi Art Deco stíll, innblásinn af glitrandi bjartsýni og merkisviðburðum samtímans. Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.
Thebe er stórkostleg heilmynd þar sem alltaf er eitthvað nýtt að uppgötva. Falleg pálmatrén, tignarlegu píramídarnir og stórfljótið Níl fanga augað samstundis en inn á milli leynast blóm og dýr. Landslagið lifnar við á sterklegum jútavefnum. Tvítóna mynstrið, sem ofið er með svokallaðri fil-à-fil tækni, skapar einstaka dýpt – það er eins og myndin sjálf sé að lyftast af veggnum. Heilmyndin er 400 cm x 300 cm, samtals 12m2. Mögulegt er að endurtaka mynstrið með því að tengja saman nokkrar heilmyndir.
Thebe veggfóðrið er úr náttúrulegum jútatrefjum með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel. Eindregið er mælt með fagmanni í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Chiavi Segrete Olive - Cole & Son
Chiavi Segrete Autumnal Leaves - Cole & Son
Savannah - Boråstapeter
Noah Mural Green - Sandberg (m2 verð)
Hedda, Sandstone - Sandberg
Eugen Sandstone - Sandberg
Noah Mural Blue - Sandberg (m2 verð)
Matrinah, Burnt Orange & Charcoal on Ginger - Cole & Son
Fairy Tale Castle Blue - Rebel Walls
Meadow, Metallic Bronze & Soot - Cole & Son
Jungle Friends - Boråstapeter
Hav, Misty Blue - Sandberg
Mischievous Monkeys, Lush - Rebel Walls
Forest Friends Mural - Boråstapeter
Fantasy World, Dusk - Rebel Walls
Leon, Charcoal - Sandberg
Nene, Coral, Sage & Teal on Parchment - Cole & Son
Giraffe's Stroll, Pink - Rebel Walls
Peaseblossom, Fuchsia on Oat - Cole & Son
Paddy & Louis Border - Cole & Son
Fenix - Boråstapeter
Dreamscape, Dusty Pink - Rebel Walls