Tasar White Smoke - Arte
Tasar White Smoke – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í ljósdröppuðum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Canvas Indigo - Boråstapeter
Pure Acorn, Linen/Ecru - Morris & Co
Marsh Pine Grey - Arte
Lignes Paille - Arte
Majesto Caramel - Arte
Wilton Confetti - Sandberg
Zanjan, Ash - Rebel Walls
Carmen, Metallic Bronze - Cole & Son
Butterflies & Dragonflies, Alabaster & Metallic Gold on Pale Cream - Cole & Son
Canvas Straw - Arte