Tasar Bronze - Arte
Tasar Bronze – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í bronsbrúnum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Borage Red House - Morris & Co
Granville Beaver Brown - Arte
Secret Garden, Forest Green on White - Cole & Son
Manchas Umber - Arte
Wilma, Blue - Sandberg
Mischievous Monkeys, Lush - Rebel Walls
Cabinet Of Curios, Raw - Rebel Walls
Éclat Rust - Arte
Nelson Cream - Arte
Natural Linen - Boråstapeter
Pompeian - Cole & Son
Bouclé Cloud - Arte
Nautilus, Coral and Soft Olive - Cole & Son
Fredrika - Boråstapeter
Éclat Smoke - Arte
Cow Parsley, Parchment - Cole & Son
Lignes Washed White - Arte