Standen Seaglass - Morris & Co
Standen Seaglass – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Standen er fallegt og smágert blaðmynstur sem heldur mildilega utan um rýmið. Oft er þetta veggfóður tekið á alla veggi í stað þess að mála þá. Mynstrið er unnið upp úr bakgrunni hins þekkta Lily mynsturs og var endurprentað sérstaklega 2017 þegar Standen House í Sussex var gert upp, en það fallega sveitasetur er einmitt almennt talið eitt best varðveitta dæmið um list- og handíðahreyfinguna og hönnunarhugsjónir Morris sjálfs.
Standen er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
29.261 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Lignes Pearl - Arte
Carmen, Metallic Gold - Cole & Son
Pure Net Ceiling, Cream/Eggshell - Morris & Co
Uccelli Cerulean Sky - Cole & Son
Canvas Dew - Arte
Alice's Garden, Dusk - Rebel Walls
Skaft - Purdy, Power Lock 183-366cm
Chanderi Almond - Arte
Nautilus, Chartreuse & Petrol on Midnight - Cole & Son
Manchas Cotton - Arte
Linnea, Charcoal - Sandberg
Cuadro Cloth - Arte