Pure Willow Boughs, Ivory/Pearl – Morris & Co
33.933 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Willow Boughs er eitt ástsælasta veggfóður William Morris. Pure Willow Boughs er einfölduð útgáfa af upprunalega mynstrinu og endurmáluð í einungis þremur litum, sem gefur innanhússhönnuninni fágun og nútímalegan blæ.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun


































Lin Normandie Paillotte - Arte
Pensill - Anza, Super Effective Flat 70mm
Nuvolette, Stone - Cole & Son (2 rúllur)
Lin Bottle Green - Arte
Macchine Volanti, Sky Blue - Cole & Son (2 rúllur)