Pure Poppy, Dove/Chalk – Morris & Co
33.933 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Pure Poppy er eitt vinsælasta handprentaða veggfóðrið frá Morris & Co, hannað árið 1881. Fegurð þess birtist í friðsælum litasamsetningum og flókinni hönnun. Við framleiðsluna voru upprunalegu prentblokkirnar notaðar. Segja má að Pure Poppy sé mild leið til að kynna Morris-hönnun inn á heimilið.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun


































Lin Vallauris - Arte
Malachite Emerald & Black - Cole & Son
Lin Normandie Gentleman - Arte
Lin Wheat - Arte
Frutto Proibito Sage & Magenta on Ink - Cole & Son
Chiavi Segrete Slate Blue & Grey - Cole & Son
Acquario Ink - Cole & Son
Lin Old Mauve - Arte
Terre de Lin Alizé - Arte
Lin Bain de Boue - Arte
Lin Straw - Arte
Lin Normandie Chanvre - Arte
Lin Shitake - Arte