Pure Bachelors Button, Stone/Linen – Morris & Co
35.205 kr. lengdarmetraverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Laufblöð snúast og þyrlast um á þessu milda, eintóna veggfóðri Pure Bacherlors Button. Hönnuðir Morris og Co. stækkuðu upprunalega mynstrið frá 1892 og máluðu í dramatískum miðalda freskustíl, sem gefur okkur þetta stórfenglega veggfóður.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun


































Skafa - Anza, 50mm
Lin Normandie Opaline - Arte
Lin Denim - Arte
Terre de Lin Porcelain - Arte
Terre de Lin Coco - Arte
Lin Normandie Authentic Rust - Arte
Hræra fyrir borvél - Mako, 80mm
Macchine Volanti, Soot & Snow - Cole & Son (2 rúllur)
Uccelli Cerulean Sky - Cole & Son
Terre de Lin Louis XVI - Arte