Pure Acorn, Ecru/Pewter – Morris & Co
35.914 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Pure Acorn er fallegt veggfóðursmynstur með akörnum og greinum eikartrjáa, upprunalega hannað árið 1879. Mynstrið var unnið með gömlu handprentblokkunum frá Morris & Co. Í þessari útgáfu er það prentað í vetrarlegum litum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun


































Lin Potatoes - Arte
Vintage Flora Green - Rebel Walls
Lin Normandie Blue d'Encre - Arte
Lin Normandie Moonlight - Arte
Lin Normandie Scarabée - Arte
Terre de Lin Cabanon - Arte
Wallflower Mumington's Stem - Morris & Co
Lin Chaume - Arte
Grandiflora Pearl - Rebel Walls
Songbirds Pink - Rebel Walls
Terre de Lin Absinthe - Arte
Lin Normandie Forest - Arte
Dazzling Foliage Lush - Rebel Walls
Gothic Arches Grey - Rebel Walls
Mystery Lake Blue - Rebel Walls
Mystery Lake Vintage - Rebel Walls