Papyrus Nightfall - Arte
Papyrus Nightfall – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Papyrus veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Gömul handverkshefð er notuð við gerð Papyrus veggfóðursins. Pappír er brotinn saman í lög, skreyttur með málmbleki í veðraðri áferð og síðan skorinn í litla strimla. Þeir eru svo ofnir saman í handvefstól. Þetta þýðir að engin endurtekning myndast í mynstrinu, sem þýðir að hver fermetri er ekta og einstakur.
Papyrus er veggfóður úr náttúruefnum. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
20.893 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun










P8030 vegglisti
Vallmo - Boråstapeter
Alma Espresso - Arte
Daisy, Artichoke/Plaster - Morris & Co
Kefli - Friess, Malerstreif 15cm
Cuddle Clouds, Pink - Rebel Walls
Alba - Boråstapeter
Wundervogel - Boråstapeter
Cascade, Leaf Green - Cole & Son
Terre de Lin Central Court - Arte
SX182 alhliða listi
Woodbell & Anemone, Woad/Nettle - Morris & Co
Moa - Boråstapeter
CX126 loftalisti
Tamba Coral - Arte