Pantheon Navy - Arte
Pantheon Navy – Arte
Skrautþiljur í öllum stærðum og gerðum hafa prýtt veggi og loft um aldir. Sem dæmi má nefna gólflista, loftalista, brjóstþil og veggþiljur í virðulegum stórhýsum, glæsihöllum og friðlýstum byggingum. Þessi form eru innblásturinn fyrir Objet veggfóðurslínuna hjá Arte. Pantheon veggfóðrið minnir einmitt á klassískt hólfaloftið í Pantheon í Róm en sú hönnun var til þess hugsuð að létta strúktúrinn á hvelfingum og öðrum loftum. Glæsilegt veggfóðrið er bæði auðvelt í uppsetningu og hefur fallegan lit og áferð sem skapar ró í rýmin. Áferðin hefur yfirbragð rúskinns og skapar áþreifanlega mýkt. Þar sem veggfóðrið er í þrívídd hefur það einnig jákvæð áhrif á hljóðvist.
Pantheon veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Pantheon hefur hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleika. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem mælt er eindregið með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
38.146 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











Oriental Garden - Boråstapeter
Facet Antique Gold - Arte
Couture Carousel Windows, Lavender Pearl - Cole & Son
Ceder, Gray - Sandberg
Ebba, Green - Sandberg
Bouclé Cloud - Arte
Lin Stone - Arte
Summer Lily - Cole & Son
Gioco Moss - Arte
Siv, Burgundy - Sandberg
Alba Bark - Arte
Sabal Petrol - Arte
Zen Mural, Indigo Blue - Sandberg
Franges Khaki - Arte
Canvas Sand - Arte
Manchas Saffron - Arte
SX155 gólflisti
Infini Teal - Arte
Magnus, Forest Green - Sandberg