Owl & Willow, Bayleaf/Orange - Morris & Co
Owl & Willow, Bayleaf/Orange – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Heillandi dýralíf, stílfærð tré og fíngerð blóm sameinast í þessari töfrandi heilmynd. Við sjáum fagra hesta spóka sig, ljón sem laumast og læk sem liðast fagurlega um. Ljóst er að dulúðin er í aðalhlutverki hér – velkomin í land ævintýranna!
Owl & Willow veggfóðrið er heilmynd og kemur í þremur 68,5 cm lengjum. Breidd myndar er 205,5 cm og hæð 300 cm. Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Owl & Willow er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
88.547 kr.
Í boði sem biðpöntun































Floral Charm - Boråstapeter
Hip Rose - Boråstapeter
Leopard Walk, Orange on Linen - Cole & Son
Chanderi Seagull Grey - Arte
Anton, Terracotta - Sandberg
Valentin Misty Blue - Sandberg
Mattias, Wheat - Sandberg
Raphael Sky Blue - Sandberg
Lin Potatoes - Arte
Rajapur Flock, Hyacinth Blue & White - Cole & Son
No Time to Waste Blue - Rebel Walls
Giselle Mica, Viridian - Cole & Son
Göteborg - Boråstapeter
Signe - Boråstapeter
Alma Mocha - Arte
Cashmere Chiffon - Arte
Globes Gathering, Black and White -Rebel Walls
SX207 Square alhliða listi
Honeysuckle & Tulip, Charcoal/Gold - Morris & Co