Ornamental Frieze, Indigo/Thyme – Morris & Co
26.177 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Margt bendir til þess að upphaflega hafi veggfóðursborðinn Ornamental Frieze verið hannaður sem mynsturborði á gólfmottu. Stílfærð blóm og laufblöð mynda einstaklega fallegt mynstur sem er rammað af með skrautlegum röndum að ofan og neðan.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun














































W110 Hill veggþiljur
W113 Cobble veggþiljur
P7030 vegglisti
W122 Autoire innleggsplatti
W100 Rombus þrívíddarkubbur
W119 Bar Mix veggþiljur
SX207 Square alhliða listi
W216 Matrix veggþiljur
P3020 vegglisti
P8020 vegglisti
PX103A horn
P8030C horn
D310 framlenging á gerefti
D340 framlenging á gerefti
SX162 alhliða listi