Optique Beige - Arte
Optique Beige – Arte
Optique er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum sísalvef. Efnið er lagt í fjórar mismunandi áttir sem skapar skemmtileg þrívíddaráhrif í regluleg rúmfræðiformin. Litur: Natur, drappaður.
Optique sísalvefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
28.200 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun














