Mimic Moth Petal – Arte
61.500 kr. lengdarmetraverð
Memento Moooi veggfóðurslínan er innblásin af áhugaverðum dýrum sem finnast ekki lengur hér á jörð; eru útdauð. Þau minna okkur á mikilvægi þess að meta lífið hverja stund, búa til góðar minningar og fagna lífinu eins lengi og það endist. Uppgötvaðu felufiðrildið, fífiltrönuna, gulltígurinn, stökkgeitina og drottningargleraugnaslönguna.
Mimic Moth er veggklæðning í þrívídd með mjúku rúskinnsútliti, innblásin af lögun og heimkynnum felufiðrildisins. Hönnunin samanstendur af upphleyptum fiðrildum, umkringd sínum uppáhalds blómum. Veggfóðrið er bletta- og vatnsfráhrindandi og hefur jákvæð áhrif á hljóðvist.
Mimic Moth er textílveggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem mælt er eindregið með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr textíl á non-woven bakhlið
Myndband fyrir uppsetningu á textílveggfóðri með non-woven baki
Í boði sem biðpöntun
Paradise Birds - Boråstapeter
Flamingos, Olive - Cole & Son
Cow Parsley, Petrol & Ink - Cole & Son
Rajapur Flock, Sunshine Yellow & White - Cole & Son
Woods, Metallic Gold on Duck Egg - Cole & Son
Woods, Parchment - Cole & Son
Feather Fan, Soft Olive - Cole & Son
Palm Jungle, Forest Green - Cole & Son