Mauna Camel - Arte
Mauna Camel – Arte
Lanai veggfóðurslínan er innblásin af ljúfum sumarkvöldum á Hawaii. Nafnið Lanai merkir verönd á tungu heimamanna og minnir okkur á löng og ljúf sumarkvöld á veröndinni við Suðurhöf. Hvert mynstur í veggfóðurslínunni er handunnið og innfellt eða saumað út af mikilli alúð með rattan og raffía. Þessi dásamlegu handverk eru því næst unnin í þrívídd yfir á víníl. Lanai lifnar við á veggnum í náttúrulegum litasamsetningum.
Mauna veggfóðrið er byggt á handverki þar sem smáum bitum af rattan reyr var vandlega raðað saman í fjörlegt og að því er virðist tilviljunarkennt mynstur. Víxlun á beinum og bognum línum gefur þessari hönnun náttúrulegt útlit. Listaverkið var svo fært yfir á vínilútgáfu þar sem þrívíddin heldur sér og er framsetningin ótrúlega lík upprunalega handverkinu. Mauna er nefnt eftir Mauna Kea, hæsta fjalli Hawaii, sem er jafnframt sofandi eldfjall.
Intarsio vínilveggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Veggfóðrið er þvottekta. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
36.202 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

Tönn - Bahco, 442 fyrir 650
Blöð fyrir karbítsköfu - Purdy
Pallamoppa - Anza, skiptimoppa
Terre de Lin Médicis - Arte
Capas 34306 - Arte
Pensill - Purdy, XL Elite Dale 38mm
Marsh Washed White - Arte
Pensill - Purdy, Pro-Extra Monarch 50mm
Ewa, Dusty Pink - Sandberg
Canvas Sage - Arte
Cuadro Ochre - Arte
Hummingbirds, Charcoal & Ginger - Cole & Son
Lin Nautique - Arte
Lin Cimento - Arte
Geo - Boråstapeter