Lignes Champagne – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Kampavínsgylltur.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun





















































































































Baobab Botanica, Duck Egg - Cole & Son
Hoopoe Leaves, Crimson, Canary Yellow, Fuchsia on Stone - Cole & Son
Savanna Shell, Soot & Snow & Metallic Silver - Cole & Son
Della, Pink - Sandberg
Triana - Cole & Son
Kalahari, Spice & Black - Cole & Son
Lise, Forest Green - Sandberg