
La Perle Almond - Arte
La Perle Almond – Arte
Tíska og innanhússhönnun hafa alltaf haft mikil innbyrðis áhrif hvort á annað. Le Couturier veggfóðurslínan leitar eftir innblæstri í heim hátískufatnaðar – heim sem leggur áherslu á handverk þar sem hver flík ber vott um yfirburða listfengi og vandaða útfærslu. Sú nálgun er sameinuð í hágæða textílefnum í hátískuveggfóðri Le Couturier línunnar.
Fíngerður útsaumur með klassískri blómahönnun einkennir La Perle. Svarthvíta útgáfan er alsett perlum sem hafa verið handsaumaðar í textílinn. Eins og í hátískuklæðnaði bæta perlur við fágun vörunnar. Þar sem veggfóðrið er handgert eru útsaumuðu lóðréttu línurnar á báðum brúnum veggfóðursins óreglulegar og hluti af hönnuninni.
La Perle veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má þrýsta á eða strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi strax í upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
54.126 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun