Kona Champagne - Arte
Kona Champagne – Arte
Lanai veggfóðurslínan er innblásin af ljúfum sumarkvöldum á Hawaii. Nafnið Lanai merkir verönd á tungu heimamanna og minnir okkur á löng og ljúf sumarkvöld á veröndinni við Suðurhöf. Hvert mynstur í veggfóðurslínunni er handunnið og innfellt eða saumað út af mikilli alúð með rattan og raffía. Þessi dásamlegu handverk eru því næst unnin í þrívídd yfir á víníl. Lanai lifnar við á veggnum í náttúrulegum litasamsetningum.
Þetta veggfóðursmynstur er innblásið af glaðlegu og afslöppuðu andrúmslofti Kona, sólríka hverfisins á vesturströnd Hawaii-eyjar. Leikandi laus formin voru saumuð út með raffía-þráðum á hör áður en þau voru yfirfærð á vínil. Þrívíddin heldur sér og er framsetningin ótrúlega lík upprunalega handverkinu.
Kona er vínílveggfóður með pappírsbaki. Athugið að mælt er með að vatnsbleyta pappírsbakið aðeins áður en límið er borið á vegginn og aftan á veggfóðrið. Veggfóðrið er sterkt og þvottheldið. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
34.647 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

Lin Scotland - Arte
Titania, Metallic Gilver on Taupe - Cole & Son
Woods & Stars, Midnight - Cole & Son
Nautilus, Orange & Teal on Ink - Cole & Son
Lin Beach - Arte
Lin Vert de Gris - Arte
Terre de Lin Cabanon - Arte
Punchinello, Blush, Ballet Slipper, Eau Du Nil on White - Cole & Son
Lin Dauphin - Arte