Infini Mushroom - Arte
Infini Mushroom – Arte
Infini samanstendur af blöndu af pappírsþræði og bananalaufi, náttúrulegum efnum sem eru ofin og handlituð. Trefjarnar draga litarefnið ójafnt í sig í ferlinu en það skapar útlit sem er sérstakt fyrir þetta náttúrulega efni. Útkoman er textíll með mörgum litbrigðum sem skapar lífleg áhrif á veggnum. Litlu hnútarnir eru smávægilegur ófullkomleiki í efninu sem undirstrikar náttúrulegan uppruna.
Infini vefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
14.833 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun








Kefli - Friess, Futura lakkrúlla 25cm
Matrinah, Metallic Gilver & Charcoal on Linen - Cole & Son
Lin Most White - Arte
R13 rósetta
Maj Sandstone - Sandberg
Marsh White Smoke - Arte
Cashmere Chiffon - Arte
Terre de Lin Poivre Blanc - Arte
Pandan 34106 - Arte