Fruit, Limestone/Artichoke - Morris & Co
Fruit, Limestone/Artichoke – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Mynstrið Fruit var fyrst framleitt sem veggfóður árið 1864 og er ein elsta hönnun Morris. Það sýnir gnægð af þroskuðum granateplum hangandi á laufguðum greinum. Veggfóðrið er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Edge Flax - Arte
Hav, Misty Blue - Sandberg
Kristoffer Spring Green - Sandberg
Pure Strawberry Thief, Gilver/Graphite - Morris & Co
Waffle Weave Brick Red - Arte
Stella Misty Blue - Sandberg
Symbol Elephant - Arte
Morängen Hazel - Sandberg
Lignes Ochre - Arte
Capas 34300 - Arte
Weave Deep Sea - Arte
Palm Leaves - Cole & Son
Siv, Oat - Sandberg
Lin Denim - Arte
Chrysanthemum Toile, Eggshell/Gold - Morris & Co