Fruit Bayleaf/Russet - Morris & Co
Fruit Bayleaf/Russet – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Mynstrið Fruit var fyrst framleitt sem veggfóður árið 1864 og er ein elsta hönnun Morris. Það sýnir gnægð af þroskuðum granateplum hangandi á laufguðum greinum. Veggfóðrið er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Fruit er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Pandan 34101 - Arte
Rand Misty Blue - Sandberg
Éclat Mahogany - Arte
Acquario Ink - Cole & Son
Blossom II - Boråstapeter
Lin Normandie Sorbet - Arte
Flower Garden Mural - Boråstapeter
Bastoni Charcoal - Cole & Son
Timber Arch - Rebel Walls
Secret Garden, Forest Green on White - Cole & Son
Rose, Red & Leaf Green on Charcoal - Cole & Son
Tamba Burgundy - Arte
Hidden Medallion - Boråstapeter
Motas Rose Brown - Arte